fös. 16.11.2007
Chicago
Ég er á leiðinni til Chicago eftir klukkutíma með Gunnhildi að hitta Ara. Við ætlum að vera yfir helgina...gamangaman. Annars er langþráð vetrarfrí skollið á en mér finnst reyndar svolítið spes að setja vikufrí tveimur vikum áður en skólinn klárast. Ég hefði alveg verið til í frí fyrir mánuði en þetta er svosem fínt núna þegar ég á fríið eftir:) Ég fæ örugglega tilnefningu sem lélegasti bloggarinn þar sem ég hef ekki bloggað í mánuð svo kannski eru bara allir hættir að kíkja hingað inn... nema mamma og pabbi. Það er bara búið að vera fullt að gera ég er t.d. búin að spila í uppfærslu á La Boheme sem var alveg frábært. Þetta er alveg yndisleg tónlist. Í morgun fór ég í mjög fyndinn tónlistarsögutíma því kennarinn komst ekki svo hann sendi doktorsnema til að "kenna" okkur í dag og hún var svo stressuð að komast ekki yfir allt efnið að allt var gert á fullu spani og ég var alveg komin með hnút í magann af samúðarstressi.
Jæja... ég er farin að taka mig til....
Athugasemdir
Ég kíki líka - og ætlast til að fá ferðasögu frá Chicago frá ykkur Gunnhildi báðum ;)
Góða skemmtun!
Hrefna Katrín Guðmundsdóttir, 17.11.2007 kl. 13:59
jæja. hvenær verðuru svo heima um jólin?
eygló dóra (IP-tala skráð) 17.11.2007 kl. 18:21
Ég kíki enn og bíð spennt eftir nýjum færslum :) Góða ferð og góða skemmtun í Chicago. Sjáumst vonandi fljólega.
Kv. Erla.
Erla J (IP-tala skráð) 18.11.2007 kl. 03:13
Hæjj sæta..
Bara að senda þér eitt knús frá klakanum :*
Hafðu það gott :)
Dísa (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 22:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.