mið. 1.11.2006
Búin að ná í kennarann:)
Já já ég fer í fiðlutíma á föstudaginn klukkan 10:00. Eins gott að vera dugleg að æfa sig á morgun;) Ég talaði við hann einhvern tíman í byrjun okt. og sagði að ég myndi senda honum e-meil um hvenær ég kæmi, sem ég gerði þegar ég var búin að panta flug, en hafði ekki fengið svar. Það kom mér samt ekkert á óvart því hann hafði heldur ekki svarað fyrra e-meilinu sem ég sendi honum þó hann ætlaði að gera það...ekki mikill tölvumaður held ég;) En nú er þetta sem sagt komið á hreint. Annars finnst mér ég nú bara nokkuð dugleg i blogginu (óháð skemmtanagildi:Þ) búin að blogga 3 daga í röð... kannski bara æsingur til að byrja með, kemur í ljós....
Athugasemdir
Nei, það er flott að þú skulir blogga svona mikið :)
Kv. Gunnhildur
Gunnhildur (IP-tala skráð) 1.11.2006 kl. 21:35
Áfram með æsinginn
Ég er bara smá að prófa fínu broskallana þína, það eru ekki svona fínir hjá mér! Nenni líka ekki að fara að lesa fyrir prófið sem ég er að fara í á morgun....
Hrefna Katrín Guðmundsdóttir, 2.11.2006 kl. 19:32
sko vandamálið er bara að eg sé enga broskalla:( nema þennan sem ú settir inn;) gangi þér vel í prófinu
Gróa Margrét Valdimarsdóttir, 2.11.2006 kl. 20:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.