lau. 20.9.2008
Schostakovich 5......
Tónleikarnir eru búnir og þeir voru æði:) Ég skemmti mér svaka vel. Ég veit reyndar ekkert hvernig seinna sólóið mitt hljómaði ég bara spilaði það og þá var það búið. En mér fannst tónleikarnir í heild bara ganga vel og áhorfendur stóðu upp og klöppuðu þegar tónleikarnir voru búnir sem er alltaf gaman:) Einleikarinn var líka frábær. Ég var að spá í að kíkja í partý en ég held ég verði bara heima ég þarf að hitta meðleikarann minn klukkan 9 í fyrramálið og er soldið búin á því svo þarf ég líka að læra Hindemith fyrir mánudaginn það er sko bara harka......
Athugasemdir
Hæ! Til hamingju :) Kemur reyndar ekkert á óvart að gengið hafi vel, með þig innanborðs!
Hafðu það gott,
Ólöf
Ólöf (IP-tala skráð) 20.9.2008 kl. 07:58
Til hamingju! Það er alltaf svo gaman þegar gengur vel :) Þú hefur auðvitað stjórnað hinum svona vel... ;)
Hrefna Katrín Guðmundsdóttir, 20.9.2008 kl. 08:53
Til hamingju elskan
Ég er ekkert smá glöð að heyra að það gékk svona vel, reyndar ekki hissa. Bara frábært elsku stelpan okkar, elskum þig óendanlega og gangi þér sem allra bestu í næsta verkefni
Ástarkveðjur
Mamma og allir hinir í familíunni
Mamma (IP-tala skráð) 20.9.2008 kl. 13:47
En hvað ég er hissa að það gekk vel... djók ;)
Þá er það bara næsta, ekkert slappa af neitt góða ;)
Guðrún Rúts (IP-tala skráð) 21.9.2008 kl. 12:08
Húrrhúrr ég vissi það! Þú ert bara að láta alla vorkenn þér með því að segja að þú standir þig ekki nógu vel! ég er búin að sjá í gegnum þig! En til hamingju stór systir mín
Lov u!
Þórunn Vala (IP-tala skráð) 21.9.2008 kl. 12:17
Það er ekki að spyrja að dugnaðinum! Mér finnst líka ógó kúl að vera konsertmeistari í næsta prógrammi barasta! Þú ert alveg að rúlla þessu upp greinilega enda fyrsta flokks konsertmeistari að mínu mati ;)
Auður Agla (IP-tala skráð) 21.9.2008 kl. 14:00
Til lukku Gróa mín
Gangi þér vel og haltu áfram á þessu striki ;)
Palli (IP-tala skráð) 21.9.2008 kl. 14:27
Það er ekki að spyrja að því Gróa mín, það gengur auðvitað alltaf vel þegar þú ert við stjórnvöllinn!
Til hamingju með þetta allt saman.
Gunnhildur Daðadóttir, 21.9.2008 kl. 16:20
Hæ elsku Gróa mín og til hamingju með afrekið ! Við erum svo heppin að fá að gleðjast með þér !!!!! Hafðu það sem allra best elsku frænka mín .
Brynja frænka. (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 11:52
Hæ elsku frænka! Til hamingju !!það er aldeilis að það er nóg að gera og þú rúllar þessu öllu upp eins og þú ert vön Hafðu það sem allra best! kossar og knús lov þín Erla
Erla (IP-tala skráð) 27.9.2008 kl. 11:02
Hvað er þetta á ekkert að fara að blogga?? systir þín er þvílíkt dugleg og ekki bofs frá þér mín yndislegasta dóttir.
Er orðin leið á að sjá alltaf Schostakovich, langar að heyra einhvað annað hljómsveitarverk ehhh..., þegar þú hefur tíma elskan væri gaman að lesa frá þér
Allir biðja rosavel að heilsa elskan mín
Ástarkveðjur
Mamma
mamma pamma (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 23:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.